Matur úr héraði - málþing

Virki Þekkingarsetur býður til málþings á Gauksmýri, 28. apríl nk. kl. 13-17 þar sem fjallað verður um mat og matartengda menningu. Fundarstjóri verður Elín R. Líndal stjórnarformaður Virkis Þekkingarseturs.

Dagskráin verður bæði fjölbreytt og spennandi sem hefst á setningu Sigurbjargar Jóhannesdóttur, formanns Byggðarráðs Húnaþings vestra.

Fyrirlesarar verða:

Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, Háskólinn á Hólum: Ferðaþjónusta sem bragð er að - straumar og stefnur í matarferðaþjónustu

Dominique Plédel. Jónsson, Slow Food: góður, hreinn og sanngjarn matur

Guðmundur J. Guðmundsson, Matís: Beint frá Býli: Staða og framtíð í sölu Beint frá býli

Þóra Valsdóttir, Matís: Vöruþróun og smáframleiðsla matvæla

Svanhildur Pálsdóttir, Hótel Varmahlíð: Skagfirska Matarkistan og ég.

Stella J. A. Leví og Sæunn V. Sigvaldadóttir, Sæluostur úr sveitinni

Gudrun Kloes og Kristín Jóhannesdóttir, Fjöruhlaðborð og Sviðamessa

Svava Lilja Magnúsdóttir, Brauð og Kökugerðin: Smábakarí á landsbyggðinni

Guðmundur Helgason, Matarvirki og Kjöthornið: Matvælavinnsla - þekking í héraði

Pálína Fanney Skúladóttir, Spes Sveitamarkaður

Fleiri fréttir