Meistaradeildin og KS skrifa undir samning
Eyþór Jónasson f.h. Meistaradeildar Norðurlands og Þórólfur Gíslason f.h. Kaupfélags Skagfirðinga skrifuðu í dag undir samning þess efnis að Kaupfélagið styrkir keppni vetrarins sem ber heiti þess þ.e. KS-Deildin. Styrkurinn sem er á sömu nótum og síðustu ár er forsenda þess að hægt er að halda keppnina eins glæsilega og raun ber vitni.
Að sögn Guðmundar Sveinssonar eins aðstandenda keppninnar býst hann við harðri og spennandi keppni ekki síst þar sem margir nýjir framtíðar keppnishestar verða reyndir í vetur.
Fyrsta mótið í ár verður haldið í kvöld þegar keppt verður í fjórgangi og hefst klukkan 20:00. Hægt verður að fylgjast með keppninni á netinu en tilraunaútsending verður á slóðinni http://wms.vodafone.is/tindastoll