Menning í Bakaríinu

Það er ýmislegt að gerast í Sauðárkróksbakaríi í Sæluvikunni m.a. myndlistasýning, danskir dagar og kósý kaffihúsakvöld. Smá breyting er á dagskránni í kvöld og annað kvöld þar sem dagskrárliðirnir víxlast. Unga tónlistarfólkið sem auglýst var í kvöld spilar fyrir gesti á morgun en Leikvalshópur Árskóla í umsjá Írisar Baldvins verður með uppákomu í staðinn.

Fimmtudaginn 2. maí hefjast danskir dagar þar sem skemmtileg stemning verður á útisvæði ef veður leyfir og ungt tónlistarfólk kemur og spilar fyrir gesti og svo halda dönsku dagarnir áfram fram á sunnudag og lofar bakarinn að þeir verði með öllu því danskasta sem starfsfólkið kann.

Fleiri fréttir