Menningarfélag Húnaþings vestra stofnað

Frá stofnfundinum 29. desember. Mynd: Norðanátt.
Frá stofnfundinum 29. desember. Mynd: Norðanátt.

Rétt fyrir áramót var stofnað Menningarfélag Húnaþings vestra. Vilhelm Vilhelmsson og Sigurvaldi Ívar Helgason stóðu fyrir stofnun félagsins og boðuðu til stofnfundar þriðjudaginn 29. desember síðastliðinn. Tilgangur félagsins er að hlúa að og styðja við hvers kyns menningarstarfsemi í Húnaþingi vestra og þá einkum með rekstri húsnæðis undir slíka starfsemi.

Hugmyndin hafði verið alllengi í gerjun áður en henni var hrint í framkvæmd. Í samtali við Feyki rétt fyrir áramót sagði Vilhelm að næsta skref væri að leita eftir hentugu húsnæði, sem til dæmis gæti hýst tónlistarsköpun, myndlist og aðra menningarstarfsemi.

Þeir sem vilja bætast í hóp þeirra ellefu sem tóku þátt í stofnun félagsins geta sent tölvupóst á netfangið menhunvest@gmail.com.

 

Fleiri fréttir