Menningarkvöldi frestað um sólarhring

Það er leiðinda veðurspá fyrir kvöldið og af þeim sökum hefur verið ákveðið að fresta hinu árlega Menningarkvöldi Nemendafélags Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra sem fram átti að fara í kvöld. Menningin er í hávegum höfð í FNV og því er Menningarkvöldinu aðeins frestað um sólarhring og hefur því verið sett á annað kvöld – laugardaginn 14. nóvember.

Það gefst því væntanlega bara meiri tími til að æfa atriðin,  setja upp andlitin og pússa spariskóna áður en veislan hefst.

Fleiri fréttir