Appelsínugul veðurviðvörun föstudagskvöldið þrettánda

Appelsínugul viðvörun tekur gildi um kl. 20 föstudaginn 13. nóvember og stendur til miðnættis. SKJÁSKOT AF VEÐUR.IS
Appelsínugul viðvörun tekur gildi um kl. 20 föstudaginn 13. nóvember og stendur til miðnættis. SKJÁSKOT AF VEÐUR.IS

Aldrei þessu vant þá virðist allt stefna í að veðurfrétt Feykis um yfirvofandi vetrarveður muni ganga eftir. Veðurstofan hefur í það minnsta smellt appelsínugulri viðvörun á Strandir og Norðurland vestra annað kvöld. Í dag verður víða lítils háttar snjókoma og sunnanátt en á morgun, föstudag, versnar í því. Gul viðvörun tekur gildi um kl. 14 en um það leyti sem Gísli Marteinn birtist á skjám landsmanna uppfærist viðvörunin í appelsínugula.

„Norðan 18-25 m/s og talsverð snjókoma með skafrenningi, einkum á fjallvegum og á Tröllaskaga. Ferðalög ekki ráðlögð,“ segir í veðurlýsingu Veðurstofunnar. Það má reikna með að það snjói framan af degi en þegar líður að kvöld er búist við slyddu eða rigningu við sjávarsíðuna en snjókoma inn til landsins.

Það dregur úr úrkomu upp úr miðætti aðfaranótt laugardags og veðrið verður að mestu gengið niður um hádegi á laugardag. Veður skaplegt fram í næstu viku.

Þegar þessi frétt er skrifuð eru vegir á Norðurlandi vestra ýmist greiðfærir eða stráðir hálkublettum. Sem stendur er éljagangur á Holtavörðuheiði og í Húnaþingi vestra.

Fleiri fréttir