Karl Björnsson ráðinn yfirlæknir hjá HSN á Blönduósi

Karl Björnsson mætir til starfa í byrjun árs. MYND AF HSN.IS
Karl Björnsson mætir til starfa í byrjun árs. MYND AF HSN.IS

Karl Björnsson heimilislæknir hefur verið ráðinn yfirlæknir hjá HSN á Blönduósi. Hann tekur við starfinu í byrjun nýs árs. Í frétt á vef HSN segir að Karl sé mörgum á Blönduósi að góðu kunnur, enda starfaði hann sem heimilislæknir á svæðinu í áratug, frá 2012 til 2022.

„Hann er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum, útskrifaðist frá læknadeild Háskóla Íslands árið 1992 og hefur starfað sem læknir frá árinu 1993. Hann lauk sérnámi í heimilislækningum í Skövde í Svíþjóð árið 2004.

Karl hefur víðtæka reynslu af störfum í meðal annars heilsugæslu, á bráðamóttöku, í öldrunarþjónustu og á heilsueflandi móttöku. Auk starfa sinna á Blönduósi hefur hann starfað sem læknir í Vestmannaeyjum, hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands, á hjúkrunarheimilum Hrafnistu og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Síðast starfaði hann hjá Heilsugæslunni í Urðarhvarfi.

Við hlökkum til að fá Karl aftur til starfa á Blönduósi og bjóðum hann hjartanlega velkominn til okkar hjá HSN!“ segir í fréttinni.

Fleiri fréttir