Menningarsjóður KS úthlutar styrkjum á 50. afmælisári sínu
Úthlutun úr Menningarsjóði Kaupfélags Skagfirðingar fór fram í Kjarnanum í gær, 18. desember, en sjóðurinn fagnar nú hálfrar aldar afmæli en 50 ár eru liðin frá fyrstu úthlutun úr sjóðnum, sem var þann 17. október 1962.
Í ræðu sinni sagði Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri að á þessu tímabili hafa um 100 milljónir verið úthlutaðar en að þessu sinni hlutu 20 verkefni styrk, heildarupphæðin sem úthlutuð var 7 milljónir króna.
Björn Anton Guðmundsson. Mynd: Davíð Már.
Farandbikar til minningar um Stefán Guðmundsson fyrrverandi stjórnarformann Kaupfélags Skagfirðinga og konu hans Hrafnhildi Stefánsdóttur var einnig til afhendingar og hann hlaut að þessu sinni Björn Anton Guðmundsson fyrir íþróttaárangur en hann hefur spilað með knattspyrnudeild Tindastóls undanfarin ár.
Þeir sem hlutu styrki úr Menningarsjóði KS voru:
- Ungmennasamband Skagafjarðar. Fjárstuðningur vegna reksturs íþróttastarfs.
- Áhugahópur um minnisvarða um landnám Flóka Vilgerðarsonar. Fjárstuðningur vegna minnisvarða um landnám Flóka Vilgerðarsonar í mynni Flókadals í Fljótum.
- Snorraverkefnið. Fjárstuðningur til eflingar á samskiptum milli Íslands og Vesturheims.
- Bókaútgáfan Opna. Fjárstuðningur til styrktar útgáfu bókar, Sagnaþáttum að norðan eftir Hannes Pétursson.
- Sauðárkrókskirkja. Fjárstuðningur til að flóðlýsa kirkjuna
- Maddömurnar. Fjárstuðningur til styrktar starfsemi félagins.
- Hólaskóli Háskólinn á Hólum. Fjárstuðningur til að halda námskeið fyrir norræna doktorsnema í sjávarlíffræði í aðstöðu Háskólans á Hólum.
- Ysland ehf. Fjárstuðningur vegna útgáfu á nýjum geisladiski sem Sverrir Bergmann er að gefa út.
- Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi. Fjárstuðningur vegna kaupa á hjartaómtæki
- Sögufélag Skagfirðinga/Byggðasaga Skagafjarðar. Fjárstuðningur vegna töku hluta heimildarmynda um gerð verkefnisins Byggðasögu Skagafjarðar.
- Byggðasafn Skagafjarðar. Fjárstuðningur til prentunar rits um miðaldarkirkjur 1000-1318.
- Byggðasafn Skagafjarðar. Fjárstuðningur til að ljúka viðgerðum á baðstofu og framhúsi á Tyrfingsstöðum í svo kölluðu Tyrfingsstaðaverkefni.
- Karlakórinn Heimir. Fjárstuðningur vegna starfsemi kórsins.
- Kirkjukór Sauðárkrókskirkju. Fjárstuðningur vegna starfsemi kórsins.
- Rökkurkórinn. Fjárstuðningur vegna starfsemi kórsins.
- Sönghópur félags eldri borgara í Skagafirði. Fjárstuðningur vegna starfsemi kórsins.
- Alþýðulist. Fjárstuðningur vegna starfsemi félagsins.
- Skotta kvikmyndafjelag í samstarfi við Upprekstrarfélag Hóla- og Viðvíkurhrepps. Fjárstuðningur vegna kostnaðar við útgáfu á heimildarmyndinni um Kolbeinsdalsafrétt.
- Jón Ormar Ormsson. Styrkur vegna menningarmála.
- Áhugahópur um hús vegna menningar-og listsköpunar í héraði. Fjárstuðningur til að skoða og kanna með hvaða hætti sé hægt að bæta aðstöðu íbúa til menningar og listsköpunar í héraði.