Messa á degi aldraðra
feykir.is
Skagafjörður
13.05.2015
kl. 12.05
Þann 14. maí, sem er uppstigningardagur, verður messa kl.11 í Sauðárkrókskirkju. „Uppstigningardagur er tileinkaður öldruðum í kirkjunni og því vel við hæfi að elsti starfandi prestur prófastsdæmisins, Sr. Gylfi Jónsson á Hólum, prédiki,“ segir í tilkynningu frá sóknarpresti.
Einsöng syngur Þorbergur Skagfjörð Jósefsson og kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn Rögnvaldar Valbergssonar organista. Ritningalestra lesa tvær heiðurskonur úr Félagi eldri borgara, þær Birgitta Pálsdóttir og Engilráð M. Sigurðardóttir. „Verið hjartanlega velkomin til kirkju,“ segir ennfremur í tilkynningunni.