Messa og tónleikar í Hóladómkirkju
Sunnudaginn 19. júlí kl. 11:00 verður messa í Hóladómkirkju. Prestur er sr. Ólafur Hallgrímsson og organisti er Jóhann Bjarnason.
Boðið verður upp á súpu og salat Undir Byrðunni að messu lokinni.
Kl. 14:00 sama dag verða tónleikar einnig í Hóladómkirkju. Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir syngja og leika á fiðlu og gítar.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.