Mette á leið á HM
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
13.07.2015
kl. 11.13
Mette Mannseth, yfirreiðkennari í Háskólanum á Hólum, hefur verið valin til að keppa á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem verður haldið í Herning í Danmörku í ágúst. Hún keppir þó ekki fyrir hönd okkar íslendinga heldur fyrir Noreg.
Mette mun keppa á hestinum Stjörnustæl frá Dalvík, en saman eru þau glæsilegt par og samkvæmt fréttatilkynningu báru þau meðal annars sigur úr bítum í fimmgangi á Íslandsmótinu í hestaíþróttum 2014.
Við óskum Mette góðs gengis í Herning.