Metþátttaka í Vinnuskóla Skagafjarðar
Á fundi félags- og tómstundanefndar í gær kom fram að metþátttaka er í Vinnuskóla Skagafjarðar þetta sumarið. Nú þegar hafa um 180 unglingar í 7.-10.bekkjum sótt um. Það jafngildir 70% allra unglinga í Skagafirði en 95% unglinga á Sauðárkróki í þessum árgöngum munu sækja Vinnuskólann í sumar.
Þá kom fram að fimmtán ungmenni hafa sótt um vinnu í gegnum átakið V.I.T. fyrir 16-18 ára unglinga og fá þeir allir vinnu.