Mið-Ísland með uppistand á Króknum
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
17.04.2015
kl. 15.48
Nemendafélag Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra stendur fyrir viðburði nk. þriðjudag, þann 21. apríl, en þá ætlar Mið-Ísland að vera með uppistand í Íþróttahúsi Sauðárkróks. „Við viljum hvetja alla í bænum sem hafa áhuga á að mæta. Þetta er alls ekki bara hugsað fyrir nemendur, heldur foreldra líka, og bara hvern sem er,“ segir í fréttatilkynningu frá nemendafélaginu.
Uppistandssýningar Mið-Íslands hafa slegið í gegn í Þjóðleikhúsinu og fyllti hópurinn hverja sýninguna á fætur annarri á síðasta leikári.
Miðaverð er 2500 fyrir þá sem eru félaga í NFNV og yngri en 16 ára, 3000 fyrir aðra.
Húsið opnar kl. 19:30 en dagskráin hefst kl. 20:00.