Miðasala á Drangey Music Festival fer vel af stað
Miðasala er hafin á Drangey Music Festival, nýrrar tónlistarhátíðar í Skagafirði sem haldin verður síðustu helgina í júní í sumar. Miðasalan fer vel af stað, að sögn Áskels Heiðars Ásgeirssonar hjá Viðburðaríkt ehf., og voru nú þegar nokkrir miðar seldir þegar blaðamaður Feykis heyrði í Áskeli Heiðari skömmu eftir að hún byrjaði kl. 10 í morgun.
Tónleikarnir munu fara fram á útisviði á Reykjum í stórbrotinni náttúru þar sem Tindastóll, Grettislaug, Drangey og Atlantshafið mynda stórkostlega umgjörð. Meðal tónlistarmanna sem fram koma á hátíðinni eru Emiliana Torrini, Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar, Contalgen Funeral og Magni Ásgeirsson.
Markmiðið með hátíðinni er að fólk á öllum aldri eigi saman góða kvöldstund með góðri tónlist í fallegu umhverfi. Hátíðina skipuleggja, auk Áskels Heiðars, þeir Viggó Jónsson hjá Drangeyjarferðum, staðarhaldari á Reykjum og Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson hjá Sviðsljósum ehf.
Miðasala fer fram á Miði.is og er takmarkaður fjöldi miða í boði.