Mikið breyttur framboðslisti Framsóknarflokksins í Skagafirði

Stefán Vagn Stefánsson, verður oddviti framboðslista Framsóknarflokksins í Skagafirði til sveitarstjórnarkosninganna í vor.
Stefán Vagn Stefánsson, verður oddviti framboðslista Framsóknarflokksins í Skagafirði til sveitarstjórnarkosninganna í vor.

Framboðslisti Framsóknarflokksins í Sveitarfélaginu Skagafirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2018 hefur verið kynntur. Mikil breyting hefur orðið á mannvali listans en Stefán Vagn Stefánsson mun sem fyrr leiða listann. Ingibjörg Huld Þórðardóttir situr í öðru sætinu, Laufey Kristín Skúladóttir í því þriðja og Axel Kárason verður í því fjórða.

Þórdís Friðbjörnsdóttir, Viggó Jónsson og Bjarki Tryggvason sem öll eru í framvarðasveit núverandi sveitarstjórnarlista eru í heiðurssætum nú eða þeim þremur síðustu. Á framboðslistanum eru átta konur og tíu karlar og er jafnt kynjahlutfall í 16 efstu sætunum. 

Framboðslisti Framsóknarflokksins er eftirfarandi: 

1. Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn

2. Ingibjörg Huld Þórðardóttir, talmeinafræðingur

3. Laufey Kristín Skúladóttir, markaðs- og sölustjóri

4. Axel Kárason, dýralæknir

5. Einar E. Einarsson, bóndi

6. Sigríður Magnúsdóttir, sérfræðingur

7. Jóhannes Ríkharðsson, bóndi

8. Atli Már Traustason, bóndi

9. Eyrún Sævarsdóttir, verkefnastjóri á héraðsskjalasafni

10. Hólmfríður Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri og doktor í lífvísindum

11. Björn Ingi Ólafsson, starfsmaður í mjólkursamlagi KS

12. Sigurlína Erla Magnúsdóttir, ráðunautur

13. Sigurður Bjarni Rafnsson, framleiðslustjóri  

14. Guðrún Kristófersdóttir, atvinnurekandi

15. Snorri Snorrason, skipstjóri

16. Þórdís Friðbjörnsdóttir, forstöðumaður

17. Viggó Jónsson, forstöðumaður

18. Bjarki Tryggvason, skrifstofustjóri

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir