Mikið framundan í Skagafirði

Á heimasíðu sveitarfélagsins Skagafjarðar segir frá því að fjölmargir viðburðir og ráðstefnur eru á dagskránni í Skagafirði á komandi vikum.

Aðalfundur Samfés, samtaka félagsmiðstöðva, fór fram í Skagafirði á dögunum og vorfundur Grunns, félags stjórnenda á skólaskrifstofum verður haldinn í Skagafirði dagana 18.-20. maí. Í maímánuði koma einnig bæjar-/ og sveitarstjórar landsins til fundar í Skagafirði og í júní stendur sveitarfélagið fyrir vinabæjamóti. Um miðjan júní fer síðan fram norrænt mót lögreglumanna í knattspyrnu sem mun draga mikinn fjölda gesta í fjörðinn. Þegar sumri fer að halla stendur Skíðadeild Tindastóls fyrir stórri alþjóðlegri skíðaráðstefnu sem gert er ráð fyrir að fram fari í ágúst og í upphafi októbermánaðar heldur Byggðasafn Skagfirðinga árlegan Farskóla safnamanna.

Meðal annarra viðburða sem eru á dagskránni næstu mánuði má nefna Tekið til kostanna - alþjóðlega hestadaga í lok apríl, Sæluvikuna sem hefst 1. maí, Molduxamótið í körfubolta sem einnig er í maí, Jónsmessuhátíðina í Hofsósi sem verður 17.-19. Júní, Lummudaga í Skagafirði sem fara fram síðustu helgi júnímánaðar, Landsbankamót í knattspyrnu og Barokkhátíð á Hólum. Sunnudaginn 26. júní hefst vikulangt Landsmót hestamanna á Vindheimamelum, sem gert er ráð fyrir að verði ein fjölmennasta íþróttahátíð ársins og hið árlega Skagafjarðarrall fer fram 22.-24. júlí. Alþjóðlegir óperutónleikar verða í Menningarhúsinu Miðgarði um verslunarmannahelgina þar sem þekktir söngvarar koma fram, ásamt Karlakórnum Heimi og félögum úr Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Ágústmánuður býður upp á Króksmót í knattspyrnu, Hólahátíð og tónlistarhátíðina Gæruna 12.-14. ágúst, auk sögudags á Sturlungaslóð og Sveitasælu - landbúnaðarsýningar en báðir viðburðir fara fram þann 20. ágúst. Síðasta helgin í september er síðan helguð Laufskálarétt og hátíðarhöldum sem henni fylgja. Þessu til viðbótar er fjöldi viðburða sem tengjast íþróttum, bæði frjálsum íþróttum, hestaíþróttum og mótorsporti, auk fjölda opinna móta á hinum glæsilega Hlíðarendagolfvelli við Sauðárkrók.

Á þessari upptalningu, sem er alls ekki tæmandi, sést að það eru mjög takmarkaðar líkur á því að gestum sem sækja Skagafjörð heim þurfi að leiðast og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í skagfirsku viðburðaflórunni.

Fleiri fréttir