Mikið um að vera í körfuboltabúðunum

Það hefur mikið verið dripplað og skotið í Íþróttahúsinu á Króknum um helgina og verður svo út vikuna en Körfuboltabúðir Tindastóls hófust þar á sunnudagsmorguninn að loknu vel heppnuðu þjálfaranámskeiði.

Í gær hófu minniboltakrakkarnir æfingar og þátttakendur fengu fyrirlestur á mannmáli um næringu ýmissa fæðutegunda og drykkja en Hólmfríður Sveinsdóttir næringarfræðingur flutti góðan fyrirlestur fyrir krakkana sem vakti verðskuldaða athygli því Hófí talaði til krakkanna á mannamáli og skildu þau vel það sem um var fjallað.

Hinir frábæru þjálfarar búðanna héldu áfram að kenna þátttakendum ýmsar kúnstir í boltanum og er aðdáunarvert hversu vel þeir ná til krakkanna. Á heimasíðu Tindastóls segir að enn sé hægt að bæta við þátttakendum í minniboltanum og er næsta æfing kl. 14 í dag.

Allir sem áhuga hafa á eru hvattir til að kíkja í íþróttahúsið á æfingatímum og sjá hvað þar fer fram, það verður enginn svikinn af því.

Myndasafn  er komið á Facebooksíðu búðanna sem gaman er að skoða.

Fleiri fréttir