Mikill hugur í fólki á héraðsþingi USVH

Héraðsþing USVH var haldið í félagsheimilinu Víðihlíð í gær. Þingstörf gengu vel fyrir sig og mikill hugur í fólki fyrir starfinu. Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ, og Sigurður Guðmundsson, landsfulltrúi UMFÍ, sátu þingið. Sæmundur veitti Pétri Þresti Baldurssyni, varaformanni USVH, starfsmerki UMFÍ.

Það kom fram á þinginu að stærsta verkefni héraðssambandsins er framkvæmd á Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið verður á Hvammstanga  dagana 24.-26. júní í sumar. Eins og áður verður  stefnt að því að góður hópur ungmenna sæki unglingalandsmótið á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina.

Á þinginu var samþykkt ný reglugerð fyrir styrktarsjóð USVH og Húnaþings vestra vegna afreksfólks og afreksefna. Eins voru samþykktar nýjar reglur um úthlutun styrkja  til barna og unglingastarfs. Að sögn Guðmunds Hauks Sigurðssonar, formanns USVH, verður upphæð styrkja með svipuðu sniði en þeir voru hækkaðir nokkuð í fyrra.Guðmundur Haukur sagði fjárhaginn í góðu horfi.

,,Héraðssambandið veður 80 ára á þessu ári og aðalafmælisveislan verður þetta Landsmót UMFÍ 50+. Það er annars hugur í fólki og það verður nóg að gera næstu tvo mánuðina í tengslum við Landsmót UMFÍ 50+,“ sagði Guðmundur Haukur.

Á héraðsþinginu í gær var kosið um tvo stjórnarmenn, varaformanninn Pétur Þröst Baldursson og Reimar Marteinsson, meðstjórnanda, og voru þeir báðir endurkjörnir.

Myndir og texti: umfi.is

Fleiri fréttir