„Mikilvægast að vera góð manneskja“
Meistaraflokkur Tindastóls í körfu hefur átt mikilli velgengni að fagna í vetur og á góða möguleika á að landa Íslandsmeistaratitlinum í fyrsta sinn en liðið tryggði sér þátttöku í úrslitarimmu Domino´s deildarinnar með fræknu sigri gegn Haukum í gærkvöldi. Þjálfari liðsins er Spánverjinn Israel Martín Conceptión en hann flutti til Sauðárkróks síðastliðið haust, ásamt þá barnshafandi konu sinni Cristinu Ferreira, og tók til starfa hjá Tindastóli. Blaðamaður Feykis heimsótti hjónin á dögunum.
„Hann er frá Akureyri,“ segir Israel stoltur á svip þegar hann sýnir blaðamanni átta vikna son sinn, Gabriel, sem sefur vært í vöggu sinni. „Ég veit ekki hve lengi við verðum hér, vonandi sem lengst þar sem okkur líður mjög vel, en ef við flytjum burt þá komum við klárlega tilbaka eftir um tíu ár til að sýna honum hvar hann fæddist. Þá getur hann sagt mamma mín er frá Brasilíu, pabbi er frá Tenerife á Spáni en ég... ég er frá Íslandi,“ segir hann og hlær.
Israel og Cristina taka vel á móti blaðamanni og yfir kaffibolla segja þau frá æskuslóðum sínum, lífinu í atvinnuíþróttamennsku og hvernig þau hafa komið sér fyrir á Íslandi. „Ég er frá um tíu þúsund manna bæ sem heitir La Victoria de Acentejo á eyjunni Tenerife á Kanaríeyjum,“ útskýrir Israel og segist vera elstur þriggja systkina en hann á tvær yngri systur og er sjö ára aldursbil á milli þeirra allra en Israel er fæddur árið 1974.
Fjölskylda hans hefur starfrækt veitinga- og kaffihús á Tenerife um árabil. Þegar Israel er spurður um æskuár sín segir hann þau hafa snúist mikið um íþróttir en faðir hans var mikill íþróttaáhugamaður. „Þegar ég var mjög ungur tók ég þátt í alls konar íþróttum, t.d. tennis og auðvitað körfubolta. En aldrei fótbolta, einhverra hluta vegna, þó svo fyrsta gjöfin frá föður mínum hafi verið fótbolti,“ segir hann og brosir.
„Þegar ég var 10 ára gamall las faðir minn í einhverju dagblaðinu að verið væri að bjóða upp á inntökupróf í mjög góðu liði í Tenerife. Ég lét reyna á það, þeir tóku við mér og ég spilaði með þeim í 10 ár. Síðar þjálfaði ég það lið í sjö ár, þannig að öll mín æskuár og rúmlega það var ég hjá sama liðinu.“
Viðtalið við Israel og Cristinu í heild sinni má lesa í Feyki sem kemur út í dag.