Minjar verða sjávarrofi að bráð

Mikið sjávarrof á sér stað við strendur landsins og ómetanlegar fornminjar eru í mikilli hættu. Mikið af minjum eru nú þegar farnar og margar eiga stutt eftir. Frá þessu er greint í myndskeiði frá Þekkingarmiðlun ehf.

„Þetta eru í mörgum tilfellum minjar eins og naust og verbúðir en einnig verslunarstaðir og stórir bæjarhólar. Ástandið er grafalvarlegt og má flokka sem menningarlegt stórslys,“ segir í texta með myndskeiðinu.

Í meðfylgandi myndskeiði er rætt við Bryndísi Zoega og Guðmund St. Sigurðsson hjá Byggðasafni Skagfirðinga. Fram kemur að um er að ræða minjar tengdar sjósókn og landbúnaði. Landbrot er mikið á sumum svæðanna og telur tugi metra í minni núlifandi fólks. Minjar sem skráðar hafa verið á síðustu árum hafa jafnvel horfið með öllu.

Bryndís tekur sem dæmi Hraunakrók í Fljótum þar sem voru tuttugu sjóbúðir og hjallar skráðir á uppdrætti snemma á síðustu öld en nú eru fimm til sjö eftir. Svipaða sögu er að segja frá Grafarósi, Haganesvík og Bæjarklettum og Kotunum þar nærri. Kolkuós er einnig dæmi um stað þar sem minjar hafa horfið mjög hratt.

„Þetta er ekki vandamál morgundagsins, þetta er vandamál dagsins í dag,“ segir Guðmundur í viðtalinu.

https://youtu.be/bWBKh0WosWU

Fleiri fréttir