Minningarmót um Friðrik lækni

Friðjón Bjarnason varð í öðru sæti á mótinu og hér er hann (f.miðju) ásamt Auði og Frímanni í Rafsjá, en fyrirtækið er styrktaraðili mótsins. Mynd: gss.is
Friðjón Bjarnason varð í öðru sæti á mótinu og hér er hann (f.miðju) ásamt Auði og Frímanni í Rafsjá, en fyrirtækið er styrktaraðili mótsins. Mynd: gss.is

Opna Vodafone minningamótið um Friðrik lækni, heiðursfélaga í Golfklúbbi Sauðárkróks og einn af stofnendum GSS var haldið á laugdaginnvar í blíðskaparveðri. Alls tóku 29 keppendur þátt í mótinu en leikfyrirkomulag var höggleikur með forgjöf.

Glæsileg verðlaun að verðmæti um 200.000 voru veitt fyrir sex efstu sætin í höggleik, að auki voru nándarverðlaun á 6/15 braut og fyrir að vera næst holu í öðru höggi á 9/18.

Helstu úrslit:

1. Kristján Bjarni Halldórsson GSS – nettó 67 högg

2. Friðjón Bjarnason GSS – nettó 68 högg

3. Arnar Geir Hjartarson GSS – nettó 70 högg

4. Arnar Oddsson GA – nettó 72 högg

5. Haraldur Friðriksson GSS – nettó 72 högg

6. Guðmundur Ragnarsson GSS – nettó 73 högg.

Herdís Sæmundsdóttir GSS var næst holu á 6/15 braut eða 0.58 cm og Haraldur Friðriksson komst næst holu á 9/18 eða 3 metra.

 

Fleiri fréttir