Mjallhvít og dvergarnir sjö - Myndband
Í vikunni sýndi lítill leikhópur á Sauðárkróki leikritið um Mjallhvíti og dvergana sjö. Leikhópurinn, sem ekki hefur hlotið nafn ennþá, hefur verið á leiklistarnámskeiði í vetur en hver þátttakandi á við einhverskonar fötlun að stríða. Mikil tilhlökkun var hjá þátttakendum fyrir sýningunni en blaðamaður hitti leikarana þegar generalsýningin fór fram.
https://www.youtube.com/watch?v=1bf5dH_XIWI