MND deginum í Stóragerði frestað um óákveðinn tíma

Af óviðráðanlegum orsökum hefur MND fjölskyldudeginum, sem auglýstur hafði verið í Stóragerði í Skagafirði, verið frestað um óákveðinn tíma. Dagurinn verður auglýstur nánar þegar ný dagsetning liggur fyrir, að sögn Guðjóns Sigurðssonar, formanns MND félagsins.

Guðjón segir að fulltrúar MND félagsins hyggist samt sem áður heimsækja Skagafjörð á föstudaginn og funda með bæjar- og heilbrigðisyfirvöldum á Sauðárkróki.

Fleiri fréttir