Mosfellingar sendu Stólana niður í 3. deild

Fannar Gísla hefur verið iðinn við kolann í síðustu leikjum og hann gerði mark Tindastóls í dag en dugði ekki til. Þessi mynd tekin fyrr í haust. MYND: ÓAB
Fannar Gísla hefur verið iðinn við kolann í síðustu leikjum og hann gerði mark Tindastóls í dag en dugði ekki til. Þessi mynd tekin fyrr í haust. MYND: ÓAB

Tindastóll mætti Aftureldingu á Króknum í dag og ljóst var fyrir leikinn að jafntefli mundi duga Stólunum til að halda sæti sínu í 2. deild. Niðurstaðan varð hinsvegar sú að lið Tindastóls tapaði leiknum og féll því milli deilda annað árið í röð. Lukkan var ekki í liði með Stólunum í leiknum í dag.

Það var blautt og vindur að sunnan á Sauðárkróksvelli. Fannar Gísla gerði ágætt mark fyrir Stólana strax á 12. mínútu með skoti sem markvörður gestanna hefði sennilega átt að verja. Eftir þetta var Afturelding meira með boltann en þeir sköpuðu sér fá færi undan vindinum. Arnar Skúli Atlason fór meiddur af velli á 36. mínútu og í hans stað kom frændi hans, Bjarni Smári Gíslason. Þegar skammt var til leikhlés var leikurinn stöðvaður í nokkrar mínútur meðan gert var að meiðslum Hlyns Hlöðverssonar í marki Tindastóls. Þegar leikurinn hófst aftur komust Stólarnir í ágætt færi en gestirnir negldu fram og fyrir skelfileg mistök í vörn Stólanna var Alexander Davorsson skyndilega sloppinn í gegn og skoraði af öryggi. 1-1 í hálfleik.

Ljóst var fyrir leikinn að lið Dalvíkur/Reynis var löngu fallið í 3. deild og því spurning hvaða lið fylgdi þeim niður. Þrjú lið voru í fallhættu; Tindastóll og síðan Ægir og Njarðvík sem mættust einmitt í innbyrðis viðureign í Þorlákshöfn. Ægir var í næstneðsta sætinu fyrir leikinn með 21 stig en með betra markahlutfall en Stólarnir sem voru með 22 stig í 10. sæti. Stigi ofar voru síðan Njarðvíkingar með 23 stig. Í upphafi síðari hálfleiks var lið Ægis komið yfir gegn Njarðvík, eftir að hafa reyndar lent undir, og Njarðvík því fallsæti á verra markahlutfalli en Stólarnir. Það var því nauðsynlegt fyrir Stólana að halda haus undan vindi og regni í síðari hálfleik og halda í það minnsta í stigið.

Sú von minnkaði á 53. mínútu þegar Bjarna Smára hljóp kapp í kinn. Hann vann boltann fyrir framan vítateig Tindastóls en missti hann síðan frá sér og splæsti síðan í glórulausa tveggja fóta tæklingu. Dómari leiksins sýndi honum umsvifalaust rauða spjaldið þrátt fyrir mótmæli liðsfélaga hans. Stólarnir færðu sig enn aftar og reyndu að hægja sem mest á leiknum eftir þetta en gestirnir gerðust engu að síður ágengari upp við mark Stólanna. Þeir fengu þó sem fyrr fá færi en á 81. mínútu náðu þeir þó góðri sókn og náðu góðri sendingu á milli varnarmanna Tindastóls inn á vítateig þar sem Kristinn Bjartmarsson kom á fullri ferð og sendi boltann í markið. Staðan orðin 1-2 og þrátt fyrir baráttu Tindastólsmanna þá náðu þeir lítið sem ekkert að ógna marki Aftureldingar það sem eftir lifði. Á sama tíma sigraði Ægir lið Njarðvíkur 4-2. Það voru því niðurlútir Króksarar sem röltu af velli í rigningunni að leik loknum.

Fleiri fréttir