Mótmælir skerðingu fjárframlaga til viðhalds girðinganna

Viðhald varnargirðinga var til umræðu á 115. fundi landbúnaðarráðs Húnaþings vestra sem haldinn var sl. miðvikudag. Þangað kom Sigurður Ingvi Björnsson, verktaki með viðhaldi varnargirðinga í Húnaþingi vestra og gerði hann grein fyrir störfum sínum sl. ár við viðhald varnargirðinga.

Þar lagði hann fram skýrslu sína þar sem sérstaklega er fjallað um ástand girðingarinnar frá ósi Miðfjarðarár og fram í Arnarvatn og Vesturhóps- og Vatnsnesgirðingar.

Á fundinum lýsti Landbúnaðarráð yfir miklum áhyggjum af núverandi ástandi varnargirðinga í sveitarfélaginu og mótmælir harðlega skerðingu fjárframlaga ríkisins til viðhalds girðinganna.

„Ljóst er að fjöldi bænda hefur orðið fyrir beinu fjárhagstjóni vegna sauðfjár sem farið hefur á milli varnarhólfa m.a. sökum skorts á viðhaldi varnargirðinga og þurrka sl. sumur,“ segir í fundargerð.

Landbúnaðarráð samþykkti að óska viðræðna við fulltrúa Matvælastofnunar um viðhald varnargirðinga í sveitarfélaginu.

Fleiri fréttir