Myndir úr heimsókn 9. bekkjar í Keldudal
Níundu bekkingar í Árskóla á Sauðárkróki gerðu sér glaðan dag í lok síðustu viku og skelltu sér í ferðalag. Farið var í sund á Blönduósi og síðan í Keldudal í Hegranesi þar sem þau kynntu sér búskapinn og grilluðu. Foreldrum var boðið að hitta hópinn þar en síðan héldu krakkarnir áfram í Varmahlíð þar sem var kvöldvaka og gist í tjöldum þrátt fyrir kuldann.
Feykir fylgdi hópnum í Keldudal og smellti af meðfylgjandi myndum.