Myndlistarsýningin „Fyrstu sporin mín“
Kristín Ragnars opnar myndlistasýninguna „Fyrstu sporin mín“ næstkomandi laugardag, þann 16. júlí, í Kakalaskála í Blönduhlíð, Skagafirði. Um er að ræða einkasýningu Kristínar og er opnun hennar klukkan 14:00. Þá mun Sigurður Hansen flytja ljóð og María Guðmundsdóttir vera með opna vinnustofu þar sem hún sýnir handverk sitt.
Verður sýningin opin allar helgar framyfir Verslunarmannahelgina, frá kl. 14:00-17:00.