Myndlistarsýningin Litbrigði samfélagsins opnar í dag
Sólon myndlistarfélag opnar myndlistarsýninguna Litbrigði samfélagsins í Gúttó í dag, föstudaginn 26. apríl kl. 18 en sýningin stendur til sunnudagsins 5. maí. Félagar í Sólon myndlistarfélagi eru 20 talsins en að sögn Erlu Einarsdóttur eru allir félagarnir málarar, margir af þeim svokallaðir frístundamálarar. Sýningin Litbrigði Samfélagsins hefur í gegnum árin innihaldið málverk, teikningar og jafnvel veggskúlptúra.
„Á sýningunni í ár sýna 10 listamenn og er þar að finna bæði ný og eldri verk og já, sumir sitja sveittir við að klára verk fyrir sýningu,“ sagði Erla í samtali við Feyki. Sýnendur eru: Sævar Einarsson, Guðmundur Þ. Árnason (Muggur), Kristín Dröfn Árnadóttir, Svanhildur Guðmundsdóttir, Hans Birgir Friðriksson (Biggi Malla), Anna Katrín Hjaltadóttir, Borghildur Guðmundsdóttir, Hilmir Jóhannesson, Sarah-Jane Emily Caird og Erla Einarsdóttir. Erla bætir við að þessi listi sé þó ekki tæmandi því alltaf getur bæst einn og einn við síðustu daga fyrir sýningu. „Þess má geta að öllum er frjálst að sækja um aðild að félaginu og nýir félagar boðnir velkomnir,“ sagði hún.
Menningarráð Norðurlands Vestra, Sveitarfélagið Skagafjörður og Menningarsjóður K.S. hafa að sögn Erlu auk annarra stutt vel við starfsemi Sólon í Gúttó. „Viljum við listafólkið í félaginu koma til skila bestu þökkum til þeirra allra. Svo viljum við ekki síst þakka Ingibergi Guðmundssyni menningarfulltrúa NV og Katrínu Maríu Andrésdóttur atvinnuþróunarráðgjafa SSNV og verkefnisstjóra hjá Vaxtarsamningi NV fyrir þeirra mikla og frábæra stuðning. Að lokum bjóðum við að sjálfsögðu alla hjartanlega velkomna í Gúttó á Sæluviku,“ sagði Erla. Opnunartímar verða frá kl. 16-19 virka daga og frá kl. 14-18 um helgar.