Næstsíðasti Sæluvikudagurinn
Upp er runninn laugardagur, næstsíðasti dagur formlegrar dagskrár í Sæluviku Skagfirðinga 2015. Árrisulir Skagfirðingar hafa ef til vill brugðið sér í Ljósheima og notið morgunkaffis með Kaffiklúbbnum Skín við Sólu Skagafjörður, en það stendur til kl. 12.
Í Sauðárkróksbakaríi stendur yfir vörukynning á lífrænum vörum frá Kaja organic sem er með fjölbreyttar vörur og vörumerki í lífrænum matvælum. Kynningin stendur til kl 13 í dag.
Í Gallerí Lafleur kynnir Benedikt S. Lafleur hugleiðslu Sahaja jóga og hvernig unnt er að virkja lífsorkuna með einföldum æfingum. Þeir sem ekki komast geta einnig bókað kynningartíma í síma 659-3313.
Þá er um það bil að hefjast markaður í Húsi Rauða Krossins við Aðalgötu, en hann stendur til kl. 16 í dag. Bókamarkaður Lafleur hefst einnig kl. 12 og stendur til kl. 18 í Gallerí Lafleur. Þar eru til sölu og kynningar yfir 50 bókatitlar.
Sýningin Æskan og hesturinn hefst í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki kl. 14 og þar munu ungir skagfirskir hestamenn sýna listir sínar. Á sama tíma opnar Bútasaumssýning sjö vinkvenna í Kakalaskála á Kringlumýri í Blönduhlíð og verður hún opin til kl. 17 í dag og aftur á morgun. Frá kl. 14-17 er líka opið hús í Maddömukoti þar sem handverk er til sölu, ásamt heitu kaffi og meðlæti.
Í kvöld kl. 20:30 verða svo hinir árlegu Sæluvikutónleikar Karlakórsins Heimis. Sérstakur gestur á tónleikunum er Sverrir Bergmann. Kvöldinu má svo ljúka með dansleik í Mið garði þar sem Sverrir og Halldór Gunnar Fjallabróðir leika fyrir dansi. Einnig er tilvalið að skella sér á Trúbbakvöld á Kaffi Krók þar sem Biggi Sævars heldur uppi góðri stemningu.