Næturgárun Gillons er komin út - viðtal við Feyki TV

Út er komin platan Næturgárun með tónlistarmanninum Gillon. Næturgárun er safn 9 laga sem samin voru á tímabilinu 1997-2010. Platan var tekin upp af Sigfúsi Arnari Benediktssyni í Stúdíó Benmen á Sauðárkróki.

Öll lög og textar eru eftir Gísla Þór Ólafsson nema Óli Þór Ólafsson er meðhöfundur lagsins „Næturkossar“. Auk þess eru tvö ljóð á plötunni eftir aðra höfunda, „Gyðjan brosir“ eftir Geirlaug Magnússon og „Um mann og konu“ eftir Jón Óskar.

Höfundur hefur áður gefið út 5 ljóðabækur á tímabilinu 2006-2010, seinast Sæunnarkveðju – sjóljóð en Næturgárun er hans fyrsta plata.

Hér er lagið „Andrés önd“ af plötunni Næturgárun. Útgáfan er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra.

http://www.youtube.com/watch?v=ENdnacqmiN4

Fleiri fréttir