Nafn konunnar sem lést
Vísir greinir frá því að unga konan sem komið var með látna á Landspítalann í Fossvogi í fyrrakvöld hét Þóra Elín Þorvaldsdóttir. Hún var búsett í Hafnarfirði. Þóra var fædd þann 19. júlí árið 1990 og lætur eftir sig rúmlega tveggja ára son.
Sambýlismaður hennar, Axel Jóhannsson fæddur árið 1986, var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Hann hefur játað að hafa orðið henni að bana.
Feykir sendir aðstandendum og vinum Þóru Elínar samúðarkveðjur.