Naglfast naglalakk!!
Sum naglalökk eru það litsterk að þau virðast soga sig inn í nöglina sjálfa og virðist þetta tengjast litnum sjálfum frekar en gerð naglalakks eða gæðum. Þetta fékk Fröken Fabjúlöss svo sannarlega að reyna!
Fannst frökeninni Fabjúlissminn vera hámarki þegar hún skartaði argandi bleikum nöglum á bleika deginum í seinustu viku. Fabjúlössminn minnkaði þó um allnokkur desibil þegar hún tók naglalakkið af, aðeins til að horfa á bleika slykju á nöglunum á sér!
En þegar góð ráð eru dýr er Google dýrmætt! Eftir ekki svo nána eftirgrennslan fann Fröken Fabjúlöss ráð sem hægt er að styðjast við þegar þetta vandamál bankar upp á (oftast fylgir þessi hvimleiða aukaverkun bláum naglalökkum, en einnig er hægt að styðjast við ráðin að neðan þegar neglurnar eru farnar að gulna af naglalakknotkun):
1. Sítróna og sítrónusafi:
Skera sítrónu í tvennt þannig að skurðurinn sé um miðjann ávöxtinn. Stinga puttanum inn í gatið í miðju sítrónunnar og hafa þar í 3-4 mínútur. Snúa puttanum reglulega til að mynda núning. Einnig er hægt að setja sítrónusafa í glas eða skál og vera með neglurnar ofan í skálinni í nokkrar mínútur. Ekki er mælt með þessari aðferð ef sár eru við naglaböndin eða á fingrunum þar sem það á eftir að svíða!
2. Matarsódi:
Taka naglabursta eða tannbursta og bleyta hann. Dýfa honum svo ofan í matarsóda og bursta svo neglurnar með honum.
3. Hvíttunartannkrem:
Skrúbba neglurnar vel með hvíttunartannkremi. Ef það virkar á tennurnar, hversvegna þá ekki á neglurnar!
4. Corega töflur:
Leysa upp Corega töflur í vatni og hafa neglurnar ofan í vatninu í nokkrar mínútur.
5. Gamla góða pússið:
Pússa neglurnar með þar tilgerðri naglaþjöl. Þar sem slykjan er yfirleitt föst við ysta lagið á nöglunum ætti ekki að vera mikið mál að pússa hana í burtu!
Þar sem hráefnisskortur var á heimilinu og naglaþjölin góða í seilingarfjarlægð var pússunin notuð í þetta skipti til að afgreiða vandamálið, en í framtíðinni mun Fröken Fabjúlöss passa upp á það að eiga sítrónusafa og Corega töflur ef ske kynni að naglalakkið ákveði að vera með mikilmennskubrjálæði... En besta ráðið til að koma í veg fyrir svona umhverfisslys í framtíðinni er að nota undirlakk :)