Námskeið á vegum Geðhjálpar

Sigursteinn Másson, formaður Geðhjálpar, mun í dag ásamt aðstoðarmanni halda námskeið fyrir nemendur Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.

Námskeiðin heita Andleg sjálfsvörn og er um að ræða forvarnarfræðslu og þjálfun gegn geðheilsuvanda og óheilbrigðum lífsstíl. Kennarar mæta með nemendur sína, sem eiga að vera í tímum eftir hádegi á miðvikudag, en vegna fjöldatakmarkana í hópa þarf að tvískipta nemendum: Sumir mæta kl. 13:10 en aðrir kl. 14:45 - sjá skiptingu í hér á eftir - en námskeiðið tekur um 90 mín.

Fleiri fréttir