Námsmaraþon í Húnaþingi
Föstudaginn 29. apríl sl. voru nemendur 10. bekkjar Grunnskóla Húnaþings vestra með námsmaraþon þar sem þau sátu við nám í 12 tíma að hvatningu fyrirtækja á svæðinu. Fyrirtækin gáfu þeim áheit til að setja í ferðasjóð, en þau ætla í ævintýraferð á suður- og suðvesturland í maí eftir prófin.
Krakkarnir lærðu samfleytt frá 14.30 til 2.30 um nóttina með stuttum hléum til að næra sig og vonandi að þetta skili þeim góðum námsárangri í prófunum sem eru að fara í hönd.
Meðfylgjandi mynd tók Sigríður Hjaltadóttir en hægt er að kíkja á fleiri á Norðanáttinni af nemendum við nám og næringu og kannski örlítið þreyttum foreldrum sem sáu um næringuna.