Narfastaðir vann Áskorendamótið

Vel heppnað Áskorendamót Riddara fór fram s.l. laugardagskvöld í reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkróki þar sem fimm úrvalslið mættu og reyndu með sér í hörku keppni. Úrslit í annað sæti fjórgangs náðist fram með keppni í krók.

Riddari Friðrik Steinsson og Hríshrímari Elvar Logi Friðriksson stóðu jafnir í öðru til þriðja sæti í fjórgangi með einkunnina  6.53. hluti áhorfenda vildu að þeir reyndu með sér í söng til að knýja fram úrslit en Riddarar harðneituðu þeirri bón og beittu króki á móti brakði og settu á keppni í krók. Það er styst frá því að segja að Riddari Friðrik reyndist sterkari í þeirri viðureign og hlaut því annað sætið að launum.

Hinn ómþýði Riddarakór steig á stokk í þau skipti er þótti henta og söng hann afspyrnu fallega og var óhemju góður að sögn eins kórfélaga.

Liðakeppnin fór þannig að lið Narfastaða hafðisigur og fór með hinn eftirsótta bikar heim. 

  • 1.sæti Narfastaðir
  • 2.sæti Vatnsleysa
  • 3.sæti Hríshrím
  • 4.sæti Riddarar Norðursins
  • 5.sæti Lúlli Matt

 

Nánari úrslit er að finna á heimasíðu Riddara

Fleiri fréttir