Neikvæðustu áhrif Blöndulínu sjónræns eðlis

Skipulagsstofnun telur að neikvæðustu áhrif fyrirhugaðra framkvæmda verði sjónræns eðlis og áhrif á landslag og þar með einnig á útivist og ferðaþjónustu. Þetta kemur fram í áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum sem stofnunin hefur tekið saman.

Í samantektinni kemur fram að Skipulagsstofnun telur að heildaráhrif fyrirhugaðra framkvæmda m.t.t. þessara umhverfisþátta verði  talsvert neikvæð. Um er að ræða umfangsmikla framkvæmd sem felst í að reisa allt að 340 möstur, 23 m há möstur með rúmlega 300 m millibili, slétta um 120 m² svæði við hvert mastur og leggja eða lagfæra um 150 km af vegslóðum. Áhrifasvæði línanna mun ná yfir rúmlega 100 km leið frá Blöndu til Akureyrar og munu línurnar liggja um margbreytilegt landslag; um óbyggð svæði sem þéttbýlar sveitir og verða á löngum köflum sýnilegar frá fjölförnum þjóðvegi.

Þá telur Skipulagsstofnun að Blöndulína 3 muni óhjákvæmilega hafa neikvæð áhrif á landnotkun þar sem hún mun liggja um landbúnaðarhéruð og raska beint ræktuðu landi og beitarlandi auk þess að hafa í för með sér  takmörkun á landnýtingu vegna byggingarbannssvæðis.

Helstu neikvæðu áhrif sem búast má við á fugla er vegna áflugs þeirra á línur á sléttlendum og grösugum svæðum í Skagafirði og þar sem farleiðir þeirra liggja yfir stórar ár. Þá er ljóst að neikvæð áhrif verða á votlendissvæði sem njóta verndar, vegna röskunar við gerð mastrastæða og vegslóða.

Skipulagsstofnun telur áður en sveitarfélögin fimm er málið varða veitir framkvæmdaleyfi til byggingar Blöndulínu 3 innan síns sveitarfélags, þurfa að liggja fyrir niðurstöður málsmeðferðar samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, auk þess að setja þurfi ýmis skilyrði sem þurfi að framfylgja.

Hér má lesa álit Skipulagsstofnunnar í heild sinni.

Fleiri fréttir