Nemendur fögnuðu Þorra að loknum prófum
Nemendur, kennarar og starfsfólk Varmahlíðarskóla gerðu sér glaðan dag að loknum prófum um miðja síðustu viku og héldu upp á þorrann. Borðaður var hefðbundinn þorramatur, með súrum pungum, sviðasultu, hangikjöti, harðfiski, hákarli o.fl..
Einnig voru nokkur þorralög sungin við undirleik Stefáns Gíslasonar.