Nemendur heilla skólameistara með söng

Í tilefni Öskudags var safnast á sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra til að syngja í frímínútunum klukkan 11:10. Samkvæmt heimasíðu skólans leiddi stjórn nemendafélagsins sönginn og heillaðist skólameistari svo mjög að hún gaf nemendum frí eftir hádegi.

Að loknum söngnum voru afhent verðlaun í búningakeppni NFNV þar sem Agnes Bára Aradóttir sigraði. Í verðlaun var miði á árshátíð NFNV sem verður haldin 1. mars.

 

Fleiri fréttir