Nemendur í FNV heimsækja Tyrkland
Nemendur frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra fóru til Tyrklands vikuna 12.- 20. apríl en nemendurnir sex eru þátttakendur í verkefninu „Active Concern Dynamic Change“, sem fjallar um vatn í víðustu merkingu orðsins. Í tengslum við verkefnið heimsóttu nemendur frá hinum löndunum Skagafjörð í október í fyrra.
Á heimasíðu FNV kemur fram að ferðin hafi verið hin ævintýralegasta í alla staði og móttökur frábærar.
„Mannlífið þar er ólíkur því sem við þekkjum, og okkur voru sýndar einstakar forminjar t.d. grafhýsi og neðanjarðarbústaðir frá fornöld og miðöldum. Okkar fólk kynnti þau verkefni, sem unnin höfðu verið heima, um „vatn og listir“, og auk þess sögðu þau frá skólanum, landi og þjóð með miklum glæsibrag,“ segir á heimasíðu FNV.
Verkefnið er samvinnuverkefni FNV við skóla í Finnlandi, Slóvakíu, Tyrklandi og Ungverjalandi. Fulltrúar FNV í ferðinni voru nemendurnir Árni Freyr Sigurðsson, Björg Eva Steinþórsdóttir, Harpa Lind Einarsdóttir, Hildur Albertsdóttir, Sigurður Páll Stefánsson og Þórdís Þórarinsdóttir, en með í för voru Ingileif Oddsdóttir skólameistari og Steinunn Hjartardóttir kennari.
Næsta vetur tekur svo nýr hópur við verkefninu, en þau byggja á góðum grunni sem nemendur skólans hafa verið að vinna að í allan vetur.