Nemendur úr Árskóla sigursælir á stóru upplestrarkeppninni
Úrslitakeppni Stóru upplestarkeppninnar í Skagafirði var haldin í 11. sinn fimmtudaginn 17. mars. Að þessu sinni fór keppnin fram í Húsi frítímans og voru keppendur 8 talsins frá öllum grunnskólum í Skagafirði.
Auk upplestrar fluttu nemendur úr Tónlistarskóla Skagafjarðar tónlistaratriði og m.a. fluttu þær Bríet Lilja, Linda Þórdís og Matthildur tónverk fyrir strengjahljóðfæri sem þær útsettu sjálfar.
Þá var komið að úrslitum en Árskóli var sigursæll þetta árið en í fyrsta sæti var Matthildur Guðnadóttir Árskóla, í öðru sæti var Linda Þórdís Róbertsdóttir, Árskóla en í þriðja sæti var Guðbjörg Angela Mánadóttir, Grunnskólanum Austan Vatna.