Neyðarkall

Björgunarsveitin Húnar verður með Neyðarkallinn til sölu í KVH í dag á milli kl. 16-19 og í Staðarskála milli kl. 17-19. Salan er liður í landssöfnun björgunarsveitanna 2011 en aukin verkefni björgunarsveitanna kalla á meira fé til starfseminnar.

Fram kemur á heimasíðu Björgunarsveitarinnar að gengið var í næstum öll hús á Hvammstanga í gær við góðar viðtökur. Neyðarkallinn kemur á lyklakippu og er á 1.500 kr. Þeir sem vilja styrkja gott málefni geta haft samband við Björgunarsveit Húna á netfangið bjsvhunar@simnet.is og þeir koma kallinum til ykkar.

Fleiri fréttir