Nóg að gera fyrir krakka á vegum Húss frítímans í dag

Fjölbreytt afþreying er í boði fyrir krakka í og á vegum Húss frítímans í dag, föstudaginn 17. febrúar, á milli kl. 14-17. Má þar nefna ýmiskonar íþróttir, tónlistariðkun og listasmiðja.

Samkvæmt heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar er dagskráin eftirfarandi:

  • Aðstoð í hljómsveitaherberginu í Húsi frítímans
  • Öðruvísi íþróttir: Skotbolti
  • Skákklúbbur Hús frítímans kl.14:00
  • Listasmiðja: Teikningar
  • Eldhússmiðja: Bollugerð
  • Körfuboltaæfingar, 9. fl. karla kl. 14:15-15:25
  • Fótbolti 4. fl. karla og kvenna kl. 16:10-17:10
  • Frjálsar yngri kl. 14:45-16:05
  • Blástursæfingar í Tónlistaskólanum kl. 15:00-16:00

Vakin er athygli á skíðastrætó sem fer frá Húsi frítímans kl. 14. og til baka kl. 16:30. Kortið kostar 1.000 kr. Jafnframt er minnt á rafræna kortið en þeir sem ekki eiga kort verða að kaupa það á 1.000 kr. Hægt er að fá lánuð skíði og allt sem því fylgir ykkur að kostnaðarlausu.

 

Fleiri fréttir