Norðlensku tenórunum í Miðgarði frestað

Eftirfarandi tilkynning var að berast frá Viðburðaríkt:
Af óviðráðanlegum ástæðum hefur tónleikum norðlensku tenóranna sem vera áttu í Hofi á sunnudag og í Miðgarði á mánudag verið frestað.  Stefnt er að því að halda þá um miðjan október, nánar auglýst síðar.

Á tónleikunum sem um ræðir áttu að koma fram þeir Kristján Jóhannsson, Árni Geir Sigurbjörnsson og Óskars Pétursson. Þeir áttu að vera í Miðgarði mánudaginn 1. júní.

Fleiri fréttir