Norðurland í 3. sæti í Bikarkeppni FRÍ
Bikarkeppni FRÍ í frjálsíþróttum fór fram í Laugardalshöllinni í Reykjavík sl. laugardag, þann 18. febrúar. Samkvæmt heimasíðu Tindastóls var keppnin jöfn og spennandi, en alls tóku sex lið þátt, þau voru Norðurland, FH, HSK, ÍR A- og B-lið og BÁF, sameiginlegt lið Breiðabliks, Ármanns og Fjölnis.
FH sigraði í stigakeppni karla með 61 stig, ÍR hlaut 48,5 stig og Norðurland varð í 3. sæti með 42 stig. Í stigakeppni kvenna sigraði ÍR með 54 stig, Norðurland varð í 2. sæti með 48 stig og FH í 3. sæti með 46 stig. Það voru því FH-ingar sem sigruðu í samanlagðri stigakeppni með 107 stig, ÍR-A í 2. sæti með 102,5 og Norðlendingar höfnuðu í 3. sæti með 90 stig.
Skagfirðingarnir í liði Norðurlands stóðu sig vel, þar á meðal sigraði Björn Margeirsson í 1500m hlaupi (4:12,11mín), Jóhann Björn Sigurbjörnsson varð í 3. sæti í 60m hlaupi (7,32sek) og Halldór Örn Kristjánsson varð í 6. sæti í þrístökki (11,75m).
Hér má sjá nánari úrslit frá Bikarkeppni FRÍ.