Nostur í naglalökkun

Á netrúntum undanfarið hefur Fröken Fabjúlöss rekið augun í það að naglalakk virðist ætla að vera aðalmálið í haust og vetur! Og ekki bara einhverjir ákveðnir litir, heldur er það frumleiki og sköpunargáfa sem er í fyrirúmi!

Það sem Fröken Fabjúlöss var ekki lengi að reka augun í er að þetta klassíska "french manicure" lúkk virðist ætla að láta í minni pokann fyrir argandi litum með allskonar myndskreytingum, möttu naglalakki, þrívíddarlökkum (sem Frk. Fab er að missa svefn yfir!), mismunandi litum á hverri nögl og glimmerlakki ýmiskonar, jafnvel að dýfa fingrunum með blautu lakkinu ofan í glimmer og lakka svo yfir með glæru!

Það er tvennt sem stendur uppúr í trendsetti naglalakkselítunnar að mati Fröken Fabjúlöss: Möttu naglalökkin og þrívíddarlökkin. Möttu naglalökkin eru sniðug að því leytinu að matta lakkið er bara glært "overcoat" naglalakk sem er sett ofan á litlinn sem búið er að smyrja á nöglina og ræður naglalakkari algjörlega hvernig lakkið er sett á, hvort sem það er ein rönd yfir miðja nöglina, tvær neglur af fimm með mattri áferð, matt french fremst á neglurnar og svo framvegis og svo framvegis... Það eina sem setur téðum naglalakkara takmörk er hugmyndaflugið!! Alltof patent!

En uppáhald Frk. Fab þetta sísonið eru halogram naglalökkin, eða þrívíddarnaglalökkin eins og þau snúast upp á hið ylhýra! Þar sem við hérna heimsveldi Fabjúlössmans erum annálaðar fyrir litagleði og almennann áhuga á glitri hverskonar þá var ekki hægt að búast við öðru en að þrívíddarnaglalökkin myndu bora sig inn að okkar taktvisst sláandi tískuhjarta! Eins og er hefur Fröken Fabjúlöss aðeins fundið þessi naglalökk í Make Up Store hérna á Íslandi í nokkrum fallegum litum! Fröken Fabjúlöss var ekki lengi að næla  krumlunum i eitt glas af ljósbláu þrívíddarlakki en hægt og rólega mun svo bætast í safnið og verður ekki gefist upp fyrr en allir litirnir hvíla í naglalakkhillunni hérna í heimsveldi Fab!

En nú er málið að naglalakka eins og vindurinn blæs og algjörlega eins og hverjum og einum sýnist, því eins og naglalakktískan er í dag þá er varla hægt að taka feilspor... Því frumlegra, litríkara og hugmyndaríkara, þeim mun meira tískumeðvitaður er viðkomandi naglalakkari!!!

 

Fleiri fréttir