„Notalegt að tilheyra þessu samfélagi“

Hannah Kent, höfundur metsölubókarinnar Náðarstund, er í opnuviðtali Feykis í þessari viku. Hannah dvaldi á Sauðárkróki i jólafríi sínu, ásamt foreldrum sínum og systur.
Hannah Kent, höfundur metsölubókarinnar Náðarstund, er í opnuviðtali Feykis í þessari viku. Hannah dvaldi á Sauðárkróki i jólafríi sínu, ásamt foreldrum sínum og systur.

Ástralski rithöfundurinn Hannah Kent, sem margir Íslendingar þekkja sem höfund metsölubókarinnar Náðarstund (Burial Rites) heimsótti Sauðárkrók um jólin, ásamt foreldrum sínum og systur. Þar er hún aldeilis ekki ókunnug því árið 2003 dvaldi hún þar sem skiptinemi á vegum Rótarý samtakanna og hefur síðan haldið tengslum við eina af fjölskyldunum sem hún dvaldi hjá og komið nokkrar ferðir til Íslands.

Í skiptinemadvölinni heyrði hún söguna af Agnesi og Friðrik sem varð kveikjan að metsölubókinni Náðarstund og ævintýrunum sem hafa fylgt Hönnuh síðan. Aðspurð segir hún erfitt að velja eitthvað eitt sem stóð upp úr í Íslandsdvölinni. „Fyrst vil ég nefna fólkið. Ég var mjög heppin að vera send í lítinn kaupstað, þar sem ég fékk tækifæri til að kynnast öllu þessu fólki. Það hefði áreiðanlega verið öðruvísi ef ég hefði verið í Reykjavík eða jafnvel á Akureyri.

Ég sé mörg kunnugleg andlit þegar ég kem hingað og það var svo notalegt að fá að tilheyra þessu samfélagi. Sumir þekka mig ennþá sem Níels apa,“ segir Hannah meðal annars í opnuviðtali í nýjasta tölublaði Feykis sem kemur út í dag.

Fleiri fréttir