Ný bók um sjóhernaðinn í stríðinu
Út er komið nýtt stórvirki eftir Magnús Þór Hafsteinsson. Hann sendi í fyrra frá sér bókina Dauðinn í Dumbshafi – Íshafsskipalestirnar frá Hvalfirði og sjóhernaður í Norður-Íshafi 1940-1942. Nýja bókin er stjálfstætt framhald hennar og ber heitið Návígi á norðurslóðum – Íshafsskipalestirnar og ófriðurinn 1942-1945.
Þar er meðal annars sagt frá herskipum Breta sem lágu á Pollinum við Akureyri á Þorláksmessukvöld árið 1943, en einmitt þar undirbjuggu Bretar hrikalegustu sjóorrustu sem háð hefur verið í norðurhöfum þegar þýska orrustuskipinu Scharnhorst var sökkt við Norðurhöfða í Barentshafi.
Adolf Hitler leit svo á að norðurslóðir væru örlagasvæði seinni heimsstyrjaldarinnar. Hann óttaðist innrás í Noreg frá Íslandi. Stórveldin léku flókna refskák þar sem saman fóru njósnir, blekkingar og blóðugur hernaður. Litlu munaði að Churchill, Roosevelt og Stalín hittust til fyrsta leiðtogafundar síns í Hvalfirði.
Miklir skipalestaflutningar fóru sem fyrr um hafsvæðin við Ísland. Rauði herinn fékk það sem til þurfti svo sigra mætti heri nasista. Austur-Evrópa féll í hendur Stalíns og félaga hans. Sovétríkin héldu velli. Siglingum Íshafsskipalestanna fylgdu hatrammar orrustur Bandamanna við herskip og kafbáta Þjóðverja auk árása á Noreg. Stærstu herskipum Þjóðverja var að lokum eytt í einum mestu flotaaðgerðum sögunnar. Þjóðverjar brenndu niður byggðir Norður-Noregs og hröktu íbúana brott. Lega Íslands skipti höfuðmáli í þessum ofsafengnu átökum þar sem allt var lagt undir í baráttu um flutningaleiðir og aðgengi að auðlindum. Valdahlutföll á norðurslóðum gerbreyttust. Kalda stríðið hófst.
Návígi á norðurslóðum er sneisafull af upplýsingum um ótrúlega atburði sem gerðust í næsta nágrenni Íslands á mestu örlagatímum í sögu mannkyns en hafa ekki komið fram á íslensku fyrr en nú. Með þessari bók lýkur höfundur ritun sinni á sögu norðurslóðastríðsins á árum seinni heimsstyrjaldar. Báðar bækurnar varpa nýjum skilningi á sögu seinni heimsstyrjaldar. Þær eru ómissandi öllu áhugafólki um sagnfræði, stjórnmál og æsispennandi viðburði sem gerðust á hafsvæðunum í grennd við Ísland, á miðum sem eru mörgum sjómönnum kunnug.
/Fréttatilkynning