Ný borhola gefur mjög góð fyrirheit

Strókurinn stendur um a.m.k. 20 metra upp í loftið, ef holan er fullopin
Strókurinn stendur um a.m.k. 20 metra upp í loftið, ef holan er fullopin

Borverktakinn VKC lauk nýverið borun á holu LH-04 við Langhús í Fljótum. Hafði holan verið boruð niður í um 100 metra dýpi síðastliðið haust. Fyrir á svæðinu eru þrjár borholur, ein þeirra var boruð af landeiganda árið 1997 og hinar tvær af Skagafjarðarveitum, 2014 og 2015. Heildarrennsli úr þessum holum var um 5 til 6 lítrar á sekúndu af um 100°C heitu vatni. Nýlega hljóp svo á snærið.

Samkvæmt ráðleggingum frá sérfræðingum ÍSOR var ákveðið að bora nýja holu, LH-04, og var með henni leitast við að skera jarðhitasprungu á meira dýpi og ná úr henni meira vatni. 

Að sögn Indriða Þórs Einarssonar, sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs Sveitafélags Skagafjarðar, var holan prófuð í stuttan tíma þegar borinn hafði komist niður á um 160 metra dýpi. Var þá rennsli úr henni áætlað um 12 l/s. Indriði segir að ákveðið hafi verið að halda borun áfram og þegar dýpið var komið í um 171 metra dýpi, sýndist mönnum rennslið úr holunni vera komið í a.m.k. 20 lítra á sekúndu af um 100°C heitu vatni og var þá ákveðið að hætta borun. Borstangirnar voru því næst dregnar upp úr holunni og loka komið fyrir á holutoppnum. 

Mikill þrýstingur er í holunni en strókurinn úr henni stendur að minnsta kosti 20 metra upp í loftið þegar holan, sem er um 15cm í þvermál, er fullopin. Indriði segir því ljóst að þessi nýja hola LH-04 sé mjög vel heppnuð og segir ennfremur að hún hafi komið öllum á óvart.

Fyrstu rennslis- og þrýstimælingar sem fram fóru í gær, benda til þess að hámarksafköst holunnar geti verið allt að 35 l/s af rúmlega 100°C heitu vatni. Þessar niðurstöður þýða, að sögn Indriða, að nægjanlegt vatnsmagn er nú til staðar fyrir fullkláraða Fljótaveitu en í sumar er stefnt að því að klára lagningu hitaveitu í Vestur - Fljót, Flókadal og Haganesvík. 

Með tilkomu nýju holunnar er vatnsmagnið orðið margfalt meira en þarf til upphitunar húsa á svæðinu. Aðspurður um það hvort vatnið nýtist til annarra nota, segir Indriði að tíminn verði að leiða það í ljós. Þá vill Indriði að það komi fram að þeir Þórólfur Hafstað og Kristján Sæmundsson, sérfræðingar hjá ÍSOR, hafi verið helstu ráðgjafar Skagafjarðarveitna við borun á svæðinu. 

Fleiri fréttir