Ný Crossfit stöð opnar á Króknum
Vinkonurnar Sunna Björk Atladóttir og Erna Rut Kristjánsdóttir eru að opna Crossfit stöð á Sauðárkróki. Stöðin verður til húsa að Borgarflöt 5 en þær héldu fyrsta grunnnámskeiðið í íþróttasal barnaskólans við Freyjugötu um helgina. Á námskeiðinu fengu þær til liðs við sig þjálfarann Evert Víglundsson, sem einhverjir gætu kannast við úr Biggest loser þáttunum, en hann er yfirþjálfari og eigandi Crossfit Reykjavík. Blaðamaður Feykis spjallaði við þau að loknu námskeiði.
Erna flutti á Sauðárkrók fyrir tveimur og hálfu ári og starfar hjá Lögreglunni á Norðurlandi vestra. Hún hafði stundað Crossfit þegar hún bjó í Reykjavík en eftir að hún flutti á Krókinn segist hún ekki hafa fundið líkamsrækt sem höfðaði til hennar, hugur hennar sótti alltaf aftur í Crossfit.
„Þetta virkaði fyrir mig. Ég hef alltaf verið í íþróttum, körfubolta, frjálsum og sundi. Mér fannst ekki gaman í hefðbundinni líkamsrækt, að lyfta eða hlaupa á bretti. Svo prófaði ég Crossfit með frænku minni og fór á grunnnámskeið hjá Crossfit Reykjavík í framhaldi af því. Það sem heillaði mig fyrst var félagskapurinn, þar voru allir svo samheldnir og mér fannst ég vera velkomin. Félagsskapurinn skiptir svo miklu máli,“ segir hún.
Evert tekur undir og segir andrúmsloftið í Crossfit mjög gott - það snúist um hvetjandi hópefli. Að það sé alltaf verið að hvetja mann áfram og engum er mismunað eftir getu. Erna segir markmið sitt sé að hafa sama góða andrúmsloftið á Crossfit stöðinni á Króknum. „Maður þarf bara góðan félagsskap og skemmtilegar æfingar og ég vona að það verði svoleiðis hjá okkur - að hér verði Crossfit fjölskylda,“ segir hún og brosir.
„Það geta í raun allir komið í Crossfit. Það hljómar kannski eins og ég sé að reyna selja þetta en það er brýnt fyrir þátttakendum að ef þú getur ekki gert æfinguna þá finnum við eitthvað útúr því. Þá gerum við aðra útgáfu af æfingunni þangað til þú getur gert hana rétt. Við viljum hafa alla með og hjálpa öllum,“ bætir Erna við.
Meira um nýju Crossfit stöðina er að finna í Feyki sem kemur út í dag.