Ný heimasíða HSN

Ný heimasíða Heilbrigðisstofnunar Norðurlands leit dagsins ljós fyrir nokkru en slóðin er http://www.hsn.is/is. Á síðunni er nýjung sem vert er að kynna sér, sem er  VERA heilbrigðisgátt en það er vefsvæði þar sem notandi getur átt í samskiptum við heilbrigðisþjónustuna og m.a. bókað tíma hjá lækni og óskað eftir lyfjaendurnýjun.

Þá er einnig er þar hægt að fylgjast með lyfjaúttektum, bólusetningum o.fl. Á síðunni er tekið tillit til sjónskertra og lesblindra en hægt er að breyta leturstærð síðunnar ásamt því að velja mismunandi bakgrunnslit.

Vefhönnun síðunnar var í höndum Stefnu hugbúnaðarhúss á Akureyri.

/fréttatilkynning

 

Fleiri fréttir